Geðrannsókn getur tekið mánuð

Lík konunnar fannst í íbúð við Stelkshóla í Breiðholti.
Lík konunnar fannst í íbúð við Stelkshóla í Breiðholti. mbl.is/Júlíus

Geðrannsókn stendur nú yfir á manninum sem grunaður er um að hafa banað konu sinni í íbúð þeirra í Stelkshólum í Reykjavík þann 27. september. Að sögn Kristjáns Inga Kristjánssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns, er geðrannsókn hafin en hún getur tekið upp undir mánuð.

Kristján segir geðrannsóknina ekki hafa áhrif á lögreglurannsókn málsins. „Rannsóknin miðar vel og er langt komin.“

Niðurstaða geðrannsóknarinnar kemur svo til kasta dómstóla ef ákært verður í málinu. „Málið er bara rannsakað á eðlilegan hátt og geðrannsóknin sker úr um hvort viðkomandi sé sakhæfur eða ekki. Málið fer svo frá okkur til ríkissaksóknara sem tekur ákvörðun um það hvort ákært verði í málinu eða ekki,“ segir Kristján.

Hinn grunaði situr í gæsluvarðhaldi til 17. október. Að sögn Kristjáns verður ákvörðun um það hvort krafist verði áframhaldandi gæsluvarðhaldi, tekin þegar nær dregur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert