Börnum haldið inni á Höfn

Höfn í Hornafirði
Höfn í Hornafirði mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra biður fólk að keyra börn sín í skóla á Höfn í Hornafirði í dag og gæta þess að halda þeim innivið þar sem búast má við gasmengun frá eldgosinu í dag.

Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands má búast við gasmengun austur og suðaustur af gosstöðvunum, frá Héraði suður að Jökulsárlóni.

Á morgun er spáð ákveðinni norðanátt og því líkur á gasmengun suður af gosstöðvunum.

Síðdegis í gær mældist styrkur brennisteinsdíxoxíðs 18.500 míkró­grömm á rúm­metra og óttast er að gildin verði áfram há í dag.

Meng­un­ina má rekja til brenni­steins­díoxíðs sem berst frá eld­gos­inu í Holu­hrauni. Víðir Reyn­is­son, deild­ar­stjóri al­manna­varna, sagði í sam­tali við mbl.is í gærkvöldi að gild­in væru gríðarlega há enda er þetta skil­greint sem hættu­ástand á vef Um­hverf­is­stofn­un­ar.

Aðspurður sagði Víðir að hann vissi til þess að lækn­ar hefðu verið í sam­bandi við fólk og kannað með líðan þess, sér í lagi þeirra sem vitað var að væru með und­ir­liggj­andi önd­un­ar­færa­sjúk­dóma.

„Það er búið að senda út til­mæli til for­eldra barna í skól­um og leik­skól­um á Hornafirði að keyra börn sín í skól­ann á morg­un og að börn­um verði haldið inni í skól­um á morg­un,“ sagði Víðir í gærkvöldi.

„Ef þetta verður svona hátt ennþá í fyrra­málið þá gilda þau til­mæli okk­ar að fólk haldi sig inn­an­dyra. Þá má reikna með því að það verði lít­il starf­semi ut­an­dyra,“ sagði hann enn­frem­ur.

„Þetta mun því raska tölu­verðu á morg­un á þessu svæði,“ bætti hann við.

Hann sagði að þetta væri með því mesta sem hefði mælst í þétt­býli frá því mæl­ing­ar hóf­ust. „Skal­inn sem við erum með frá Havaí hann nær ekki nema upp í 15.000 [míkró­grömm á rúm­metra]. Þetta er ekki al­gengt þar,“ sagði hann og bæt­ti við að það væri mjög sjald­gæft að svo há gildi mæl­dust í byggð í eld­gos­um.

Aukin brennisteinsdíoxíðmenguun (SO2) mældist einnig á Kirkjubæjarklaustri og nágrenni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert