Týr bjargar hundruðum flóttamanna

Frá björgunaraðgerðum Týs í dag. Flóttafólkið á trébátnum.
Frá björgunaraðgerðum Týs í dag. Flóttafólkið á trébátnum. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Varðskipið Týr bjargaði rétt í þessu 342 flóttamönnum af litlum trébát um 50 sjómílur norðvestur af Trípóli. Mikill leki var kominn að bátnum samkvæmt fréttatilkynningu frá Landhelgisgæslunni. Týr hefur að undanförnu verið við störf í Miðjarðarhafinu fyrir Landamærastofnun Evrópusambandsins.

Fjöldi kvenna og barna var í hópnum eða alls 135 konur og 27 börn. Nokkrar af konunum eru barnshafandi. Veður á vettvangi er þokkalegt og gengu björgunaraðgerðir vel fyrir sig. „Er áhöfn Týs hafði lokið við að koma öllum flóttamönnunum um borð í Tý hélt varðskipið rakleiðis að öðrum bát með um 200 flóttamenn um borð og er áhöfn Týs nú að aðstoða við að koma þeim flóttamönnum um borð í annað skip sem er á staðnum. Þegar því máli er lokið mun Týr halda með flóttamennina 342 til hafnar á Ítalíu.“

Gríðarlegur straumur flóttafólks er nú á þessu svæði og hefur á þriðja þúsund manns verið bjargað þar á síðustu dögum. Meðfylgjandi er mynd frá björgunaraðgerðum Týs nú rétt áðan er þeim 342 flóttamönnum sem voru um borð í trébátnum var bjargað um borð í varðskipið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert