Mjólkursamsalan hefur ákveðið að taka úr sölu og innkalla eina tiltekna framleiðslulotu af Stoðmjólk. Þessar fernur eru merktar: Best fyrir 04.10.2015.
Ástæða innköllunarinnar er að þessi framleiðslulota vörunnar stenst ekki bragðkröfur þegar á geymsluþolið líður, segir í tilkynningu frá Mjólkursamsölunni.
Upplýsingar um vöruna:
Vöruheiti: Stoðmjólk
Strikamerki: 5690527185004
Nettómagn: 500 ml
Best fyrir dagsetning: 04.10.2015
Neytendum sem keypt hafa vöruna með framangreindri dagsetningu er bent á að þeir geta skilað vörunni í þá verslun þar sem hún var keypt eða snúið sér beint til Mjólkursamsölunnar.
Mjólkursamsalan biður neytendur velvirðingar á þeim óþægindum sem af þessu getur hafa skapast.
Nánari upplýsingar veita starfsmenn gæðadeildar Mjólkursamsölunnar í síma 450 1100 eða hægt er að koma ábendingum á framfæri í netfangið Geirj@ms.is