Kynna sóknaráætlun í loftslagsmálum

Sigrún Magnúsdóttir, umhverfisráðherra kynnir sóknaráætlunina ásamt forsætis- og utanríkisráðherra.
Sigrún Magnúsdóttir, umhverfisráðherra kynnir sóknaráætlunina ásamt forsætis- og utanríkisráðherra. Rax / Ragnar Axelsson

Íslensk stjórnvöld ætla að bregðast við loftslagsbreytingum með því að auka framlög til kolefnisbindingar, byggja upp innviði fyrir rafbíla og vinna með sjávarútvegi og landbúnaði að því að draga úr losun. Þetta er á meðal markmiða í sóknaráætlun í loftslagsmálum sem kynnt var í dag.

Áætlunin er í sextán liðum sem miða að því að draga úr losun, auka bindingu kolefnis úr andrúmslofti, styðja alþjóðleg loftslagsverkefni og efla getu stjórnvalda til að takast á við strangari skuldbindingar í loftslagsmálum. Áhersla er lögð á samvinnu stjórnvalda og atvinnulífs um að draga úr losun í tilteknum greinum og ýta undir nýsköpun og loftslagsvænar lausnir, að því er kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

Í heildina miða átta verkefni að því að draga úr nettólosun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi; í samgöngum, sjávarútvegi, landbúnaði og landnotkun. Lögð verður fram heildstæð áætlun um orkuskipti í samgöngum og lagður grunnur að því að bæta innviði fyrir rafbíla á landsvísu. Í sjávarútvegi og landbúnaði verða unnir vegvísar um minnkun losunar í samvinnu atvinnulífs og stjórnvalda. Sett verður aukið fé til landgræðslu og skógræktar og hafist handa við endurheimt votlendis. Einnig verður gert átak til að draga úr matarsóun, sem veldur óþarfa losun.

Efla stuðning við þróunarríki

Fjögur verkefni miða að því að efla samstarf Íslands og aðstoð við önnur ríki við að draga úr losun og takast á við afleiðingar loftslagsbreytinga. Settur verður á fót samstöðuhópur um nýtingu jarðhita á heimsvísu, þar sem Ísland verður í forystu. Stuðningur við þróunarríki verður efldur, m.a. verða framlög til Græna loftslagssjóðsins aukin og Landgræðsluskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna gert kleift að halda námsskeið í þróunarríkjum sem berjast gegn eyðimerkurmyndun. Virkari þátttaka verður af Íslands hálfu í loftslagsverkefnum á vegum Norðurskautsráðsins.

Þá verður hafið skipulagt starf varðandi aðlögun að loftslagsbreytingum, sem m.a. verður byggt á skýrslu um áhrif breytinga á Ísland, sem ljúka á 2016. Vöktun á jöklum Íslands verður efld og stefnt að því að gera niðurstöður aðgengilegar fyrir vísindamenn, almenning og ferðamenn og kynna jöklana og umhverfi þeirra sem lifandi kennslustofu um loftslagsbreytingar.

Áætlunin er sett fram í aðdraganda loftslagsfundar Sameinuðu þjóðanna sem hefst í París á mánudag. Íslensk stjórnvöld hafa lýst því yfir að þau stefni að því að taka þátt í sameiginlegu markmiði Evrópusambandslanda um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um 40% fyrir árið 2030 miðað við árið 1990.

Fréttatilkynning um sóknaráætlun í loftslagsmálum

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert