Þórður efstur í Norðvesturkjördæmi

Frá kynningu á frambjóðendum Pírata fyrr í mánuðinum.
Frá kynningu á frambjóðendum Pírata fyrr í mánuðinum. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Prófkjöri Pírata í Norðvesturkjördæmi lauk í gær. Efstur á lista var kjörinn Þórður G. Pétursson íþróttafræðingur og í næstu sætum á eftir voru Gunnar Jökull Karlsson, Eva Pandora Baldursdóttir, Eiríkur Þór Theódórsson og  Gunnar Ingiberg Guðmundsson.

Alls tóku 95 manns þátt í kjörinu en frambjóðendur voru 17 talsins, samkvæmt vefsíðu Pírata. Enginn hinna fimm efstu í kjörinu er Vestfirðingur.

Staðfestingarkosning stendur nú yfir á landsvísu um það hvort listinn verður samþykktur. Henni lýkur 21. ágúst. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert