Mikið rennsli enn í ám

mbl.is/Helgi Bjarnason

Vatnsyfirborð náði hámarki í ám vestanlands í morgun. Mjög mikið vatn er í ám við Mýrdalsjökul og sunnanverðan Vatnajökul samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Þar á meðal í Krossá, Jökulsá á Sólheimasandi, Múlakvísl og Djúpá. Mikil rigning var á svæðinu í dag og en stytt hefur upp í kvöld.

Rennsli fór áfram vaxandi í Hvítá og Ölfusá í dag. Mikið vatn er í öllum þverám Hvítár og mjög mikið í Soginu en rennsli þar fór í 250 m3/s og hefur ekki verið jafn mikið síðan 1999. Rennsli hafði í dag ekki náð hámarki í Hvítá við Fremstaver og er ekki búist við að Ölfusá við Selfoss nái hámarki fyrr en á föstudagskvöld eða laugardagsmorgun.

Líklegt er talið að hámarksrennsli Ölfusár við Selfoss geti farið yfir 1.000 m3/s en það gerðist síðast í febrúar 2013.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert