Börðust með hnífum í Seljahverfi

mbl.is/Þórður Arnar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð að húsnæði í Seljahverfi í Breiðholti á fjórða tímanum í dag en þar höfðu átök brotist út milli tveggja karlmanna. Mennirnir voru vopnaðir hnífum og veittu hvor öðrum alvarlega áverka. Mennirnir voru fluttir á slysadeild með sjúkrabifreiðum. 

Mennirnir, sem eru erlendir ríkisborgarar, voru undir áhrifum áfengis. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var um innbyrðis átök mannanna að ræða. Aðrir komu ekki við sögu í þessum átökum. 

Íbúar í fjölbýlishúsi þar sem mennirnir búa höfðu samband við lögreglu vegna málsins. Málið er í rannsókn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert