Fer fram á 12 ára fangelsi í máli Annþórs og Barkar

Lög­regla fær­ir Annþór fyr­ir dóm þegar málið var tekið fyrir …
Lög­regla fær­ir Annþór fyr­ir dóm þegar málið var tekið fyrir fyrst í héraðsdómi.

Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari fer fram á að bæði Annþór Karlsson og Börkur Birgisson fengju 12 ára fangelsisdóm fyrir að hafa banað Sigurði Hólm samfanga sínum á Litla-Hrauni í maí 2012. Annþór og Börkur voru báðir sýknaðir í héraðsdómi, en saksóknari áfrýjaði málinu til Hæstaréttar og var það tekið fyrir þar í dag.

Verjendur beggja kröfðust þess að dómur héraðsdóms yrði staðfestur en til var að vægustu refsingu yrði beitt ef svo vildi til að þeir yrðu fundnir sekir í málinu.

Í héraðsdómi var einnig farið fram á 12 ára fangelsi yfir þeim báðum.

Tví­menn­ing­arn­ir voru ákærðir fyr­ir að hafa valdið dauða Sig­urðar í fanga­klefa hans á Litla-Hrauni 17. maí árið 2012. Þeir hafi í sam­ein­ingu veist að hon­um og veitt hon­um högg eða spark sem hafi valdið því að rof kom á milta hans. Inn­vort­is blæðing hafi dregið hann til dauða. Annþór og Börk­ur hafa alla tíð neitað sök. 

Verj­end­ur Annþórs og Bark­ar héldu því fram að það hafi verið mik­il fíkni­efna­neysla Sig­urðar sem dró hann til dauða í fang­els­inu. Rofið á milt­anu hafi komið til við end­ur­lífg­un­ar­tilraun­ir sem voru gerðar á hon­um í fanga­klef­an­um. Eng­in vitni voru að meintri árás Annþórs og Bark­ar á Sig­urð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert