76 sóttu um 3 stöður framkvæmdastjóra hjá RÚV

Ríkisútvarpið
Ríkisútvarpið mbl.is/Eggert Jóhannesson

Samtals sóttu 76 einstaklingar um þrjú störf sem nýlega voru auglýst hjá RÚV, en um var að ræða framkvæmdastjórastöður hjá fyrirtækinu. 22 umsækjendur kusu að draga umsókn sína til baka eftir að þeim var gerð grein fyrir því að óskað hefði verið eftir því að nöfn þeirra yrðu birt.

Samkvæmt upplýsingum frá RÚV stendur ráðningaferlið nú yfir og verður tilkynnt um ráðningarnar innan skamms. Um er að ræða dagskrárstjóra númiðlunar og Rásar 2, framkvæmdastjóra framleiðslusviðs og framkvæmdastjóra miðla.

Þeir sem sóttu um stöðu framkvæmdastjóra miðla:

Agnes Marinósdóttir Deildarstjóri

Birgir Sigfússon Framkvæmdastjóri

Birkir Guðlaugsson Viðskiptafulltrúi

Brynjólfur Ægir Sævarsson MBA

Eldar Ástþórsson Upplýsingafulltrúi

Glúmur Baldvinsson M.Sc. í alþjóðasamskiptum

Guðmundur Gunnarsson Framkvæmdastjóri

Gylfi Þór Þorsteinsson Rekstrarstjóri

Hólmgeir Baldursson Framkvæmdastjóri

Jóna Finnsdóttir Framkvæmdastjóri

Karl Pétur Jónsson MBA

Liam Joseph Davies B.A. í blaða- og fréttamennsku

Ólafur Freyr Frímannsson Lögmaður

Ólafur Ólafsson Viðskiptafræðingur

Rúnar Freyr Gíslason Leikari

Sólveig Dagmar Þórisdóttir Hagnýtur menningarmiðlari

Svava Lóa Stefánsdóttir Framleiðandi

Viðar Bjarnason Verktaki

Þór Ómar Jónsson Leikstjóri / framleiðandi

Þeir sem sóttu um stöðu framkvæmdastjóra framleiðslusviðs:

Alfreð Sturla Böðvarsson Leikmynda- og ljósahönnuður

Birna Ósk Hansdóttir Framleiðslustjóri

Elín Sveinsdóttir Dagskrárframleiðandi

G. Orri Rósenkranz Verkefna- og verkstjóri

Gísli Berg Guðlaugsson Framkvæmdastjóri

Glúmur Baldvinsson M.Sc. í alþjóðasamskiptum

Guðrún Lilja Magnúsdóttir Samhæfingarstjóri

Gunnlaugur Þór Pálsson Framleiðandi / leikstjóri

Halldór Þorgeirsson Kvikmyndaframleiðandi

Hólmgeir Baldursson Framkvæmdastjóri

Jóhann Ólafur Kjartansson Leikstjóri og framleiðandi

Sólveig Dagmar Þórisdóttir Hagnýtur menningarmiðlari

Steinunn Þórhallsdóttir Ferla- og skipulagsstjóri

Svava Lóa Stefánsdóttir Framleiðandi

Úlfur Helgi Hróbjartsson Framkvæmdastjóri

Vera Sölvadóttir Framleiðslustjóri

Vigfús Ingvarsson Sérfræðingur

Þeir sem sóttu um stöðu dagskrárstjóra númiðlunar og Rásar 2:

Agnes Marinósdóttir Deildarstjóri

Anna Claessen Markaðsstjóri

Baldvin Þór Bergsson Frétta- og dagskrárgerðarmaður

Davíð Már Gunnarsson Verkefnastjóri

Eldar Ástþórsson Upplýsingafulltrúi

Glúmur Baldvinsson M.Sc. í alþjóðasamskiptum

Gylfi Þór Þorsteinsson Rekstrarstjóri

Halldóra Ósk Reynisdóttir Innanhússarkitekt

Hallur Guðmundsson Miðlunar- og samskiptafræðingur

Matthías Már Magnússon Tónlistarstjóri

Ólafur Páll Gunnarsson Útvarpsmaður

Rannveig Hafsteinsdóttir Tölvunarfræðingur

Rebekka Blöndal M.A. í blaða- og fréttamennsku

Rúnar Freyr Gíslason Leikari

Sigurður Ásgeir Árnason Framkvæmdastjóri

Steindór Gunnar Steindórsson Markaðs- og kynningarfulltrúi

Svavar Helgi Jakobsson Fjölmiðlafræðingur

Unnur Aldís Kristinsdóttir Sölu- og markaðsstjóri

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert