Reykjavíkurmaraþonið, sem fram fer á morgun, hefur töluverð áhrif á umferða og loka þarf götum á ákveðnum tímum af þeim sökum. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu birti mynd af lokunum á samfélagsmiðlum í dag.
Er því biðlað til vegfarenda að sýna þolinmæði og tillitssemi vegna götulokana.
Hlaupnar verða fjórar mismunandi vegalengdir, maraþon, hálfmaraþon, 10 km og skemmtiskokk. Ræst verður á eftirfarandi tímum: 8.40, 9.40 og 12. Búist er við að þúsundir hlaupara taki þátt í Reykjavíkurmaraþoni, sem fer nú fram í 38. sinn.