Guðmundur Árni hrifinn ólíkt Kristrúnu

Guðmundur Árni Stefánsson, varaformaður Samfylkingarinnar, segist hrifinn af svokallaðri fyrningarleið í sjávarútvegi. Felst hún í því að veiðiheimildir útgerðarfyrirtækja verði gerðar upptækar á ákveðnu árabili og þeim endurúthlutað með einhverjum þeim hætti sem tryggi ríkissjóði fjármagn af veitingu þeirra.

Þar talar hann þvert á þá skoðun sem Kristrún Frotadóttir hefur viðrað víða um land að undanförnu samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Segist Guðmundur hafa haldið hundrað ræður um málið „í gamla daga.“

Ágreiningur innan forystunnar

Þetta barst í tal í nýjasta þætti Spursmála og varðist Guðmundur Árni fimlega þegar hann var spurður út í þennan augljósa ágreining milli hans og hins óskoraða formanns Samfylkingarinnar.

Kristrún Frostadóttir hefur að undanförnu rætt við menn vítt og …
Kristrún Frostadóttir hefur að undanförnu rætt við menn vítt og breitt um landið og sagt vilja halda í núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi. Hins vegar megi deila um hversu hátt veiðigjald á útgerðina skuli vera. mbl.is/Arnþór Birkisson

Orðaskiptin um þetta efni má sjá í spilaranum hér að ofan.

Þá má sjá þáttinn þar sem Guðmundur Árni var gestur ásamt Evu Dögg Davíðsdóttur, nýjasta þingmanni VG en hún tók sæti á þingi í kjölfar þess að Katrin Jakobsdóttir sagði af sér þingmennsku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert