Hafði á brott borðtölvu, iPhone og iPad

Þjófarnir eru enn ókunnir.
Þjófarnir eru enn ókunnir. mbl.is/Eggert

Lögreglu bárust tvær tilkynningar um innbrot á áttunda tímanum í morgun.

Að því er fram kemur í dagbók lögreglu var brotist inn í vinnuskúr í hverfi 102 og fatnaður tekinn. Í miðbænum var svo brotist inn í húsnæði og hafði innbrotsþjófurinn borðtölvu, iPhone, iPad og fleira með sér á brott.

Lögreglu hefur ekki tekist að hafa hendur í hári þjófanna.

Þá var einnig tilkynnt um tilraun til innbrots og skemmdarverk í Hafnarfirði og tveir handteknir.

Líkamsárás 

Tilkynnt var um líkamsárás og skemmdarverk í Grafarvogi um hádegisleytið í dag. Um minniháttar áverka er að ræða en einn var handtekinn og vistaður í fangageymslu

Ekið var á umferðarskilti í hverfi 105 á þriðja tímanum eftir hádegi og minniháttar meiðsli voru á ökumanni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert