Eldurinn átti líklega upptök sín í rafmagnshitara

Talið líklegast að eldurinn hafi átt upptök sín rafmagns- eða …
Talið líklegast að eldurinn hafi átt upptök sín rafmagns- eða geislahitara. mbl.is/Arnþór

Grunur leikur á um að kviknað hafi í rafmagns- eða geislahitara í húsnæði bifreiðarþjónustu N1 við Fellsmúla þar sem varð stórbruni um miðjan mánuð. 

Þetta staðfestir Guðmundur Páll Jónsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is.

Guðmundur áréttir að um bráðabirgðaniðurstöðu sé að ræða en telur nokkuð öruggt að þetta verði endanleg niðurstaða tæknideildar lögreglunnar sem fer með rannsókn málsins. 

Dekkjaverkstæði N1 í Fellsmúla slapp nokkuð vel frá brunanum.
Dekkjaverkstæði N1 í Fellsmúla slapp nokkuð vel frá brunanum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Eldurinn læsti sér í stól

Það var síðdegis fimmtudaginn 15. febrúar sem allir tiltækir slökkvibílar slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu voru kallaðir út að Fellsmúla vegna mikils elds í bifreiðastöð N1.

Nú er talið nokkuð ljóst að eldurinn hafi átt upptök sín í rafmagns- eða geislahitara, læst sér í stól og dreift svo úr sér.

Húsnæði N1 skemmdist illa í brunanum auk þess sem verslanir Curvy og Stout, Slippfélagsins og matsölustaður Pizzunar fóru illa.

Verslanir á neðri hæð hússins komu mis vel frá brunanum.
Verslanir á neðri hæð hússins komu mis vel frá brunanum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Fyrirtækin við Fellsmúla koma mis vel frá eldinum 

Pizzan opnaði stað sinn aftur í dag eftir fjórtán daga lokun, en þar hafa talsverðar endurbætur átt sér stað vegna vatns- og reykskemmda. 

Óvíst er hvenær hægt verður að opna verslun Slippfélagsins á ný þar sem ekkert þak er yfir versluninni vegna brunans. 

Það sama á við um Stout, herrafatadeild Curvy og Stout, ekkert þak er yfir versluninni og mikið tjón hefur orðið vegna vatns- og rakaskemmda. Því stefna eigendur verslunarinnar ekki á að opna verslun Stout við Fellsmúla á ný, heldur færa sig um set og opna nýja og stærri verslun. 

Þá fór betur en á horfðist hvað varðar hluta húsnæðis N1 sem bíður samþykkis heilbrigðiseftirlitsins til að hefja hluta starfseminnar á ný. Um er að ræða dekkjaverkstæði N1 sem slapp vel en það var viðgerðar- og smurþjónusta N1 sem fór illa í eldinum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert