Bæta þarf samgöngur til að breyta ferðavenjum

Borgarstjóri segir framsóknarmenn í borginni leggja áherslu á samvinnu.
Borgarstjóri segir framsóknarmenn í borginni leggja áherslu á samvinnu. mbl.is/Óttar

Einar Þorsteinsson borgarstjóri segir að ekki sé hægt að biðja fólk um að breyta ferðavenjum sínum án þess að bjóða þeim upp á öflugri samgöngur. 

Þetta kom fram í ræðu Einars á 37. flokksþingi Fram­sókn­ar á hót­el­inu Hilt­on Reykja­vík Nordica fyrr í dag. Yf­ir­skrift fund­ar­ins var: „Klett­ur­inn í haf­inu“.

Reynir á alla innviði

Einar sagði öra fólksfjölgun Reykjavíkurborgar reyna á alla innviði borgarinnar. Þá sagði hann það útilokað fyrir höfuðborgarsvæðið að halda áfram að stækka nema að innviðaframkvæmdir samgöngusáttmálans komist til framkvæmda. 

„Það þýðir ekkert að segja fólki að breyta ferðavenjum sínum – að fækka bílferðum – nema að bjóða upp á raunverulegan valkost með öflugum samgöngum,“ sagði Einar. 

Á tímum skautunar er samvinna lausnin

Hann sagði skautun í samfélaginu vera færast í aukanna. Fólk væri farið að hatast út í hvort annað og hætt að vinna saman. Í því samhengi tók hann uppgang Donalds Trumps, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, í Bandaríkjunum sem dæmi. 

Hann sagði eina mótvægið við þessu ástandi vera samvinnu án öfga að miðjunni og sagði framsóknarmenn í borginni leggja áherslu á samvinnu í borgarstjórn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka