Helga komin með lágmarksfjölda undirskrifta

Helga Þórisdóttir forsetaframbjóðandi.
Helga Þórisdóttir forsetaframbjóðandi. Ljósmynd/Aðsend

Helga Þórisdóttir hefur safnað tilskildum fjölda meðmæla sem þarf til að bjóða sig fram í embætti forseta Íslands.

Fram­boðsfrest­ur til embætt­isins renn­ur út klukk­an 12 á há­degi á morg­un. Ber fram­bjóðend­um þá að skila list­um með meðmæl­um frá 1.500-3.000 kjós­end­um.

„Með sól í hjarta tilkynni ég hér með að ég hef náð undirskriftunum í meðmælasöfnun fyrir forsetaframboð. Þessu fagna ég á þessum fallega degi, sumardeginum fyrsta, og vil nota tækifærið og óska landsmönnum öllum gleðilegs sumars,“ er haft eftir Helgu í tilkynningu.

Helgu hlakkar til að geta kynnt sig enn betur fyrir landanum og stefnir á að fara á hina ýmsu staði á landsvísu til að kynna sig, að því er fram kemur í tilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert