Einn fær rúmlega 1,6 milljónir króna

Enginn var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins í Lottó og verður potturinn því þrefaldur næsta laugardag.

Heppinn áskrifandi var einn með bónusvinninginn og fær rúmar 1,6 milljón krónur í sinn hlut.

Þá fékk sömuleiðis enginn 1. vinning í Jóker-útdrættinum en þrír miðaeigendur voru með 2. vinning og fær hver þeirra 100 þúsund krónur í sinn hlut.

Miðarnir voru keyptir á lotto.is, í appinu og einn miði var í áskrift.

Heildarfjöldi vinningshafa var 5.646.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert