Halla Hrund Logadóttir forsetaframbjóðandi fagnaði sumrinu í dag er hún tók á móti gestum í kosningamiðstöð sinni að Nóatúni 17.
Kosningamiðstöðin var opnuð kl. 12 og mættu margir á opnunina.
Halla hefur reynst hástökkvari í skoðanakönnunum síðustu daga, þar sem hún hefur margfaldað fylgi sitt á nokkrum dögum.
Í síðustu könnun sem Morgunblaðið lét framkvæma mældist hún með 18% fylgi.