Rafmagnslaust er vegna háspennubilunar í vesturbæ Reykjavíkur. Þetta kemur fram í tilkynningu á vefsvæði Veitna.
„Unnið er að því að greina bilun og vonast er til að rafmagn verði komið á innan stundar. Við munum uppfæra á vef eftir því sem fram vindur,“ segir í orðsendingu á vef Veitna.