Kylie Jenner snarhætt á ketó eða hvað?

Kylie Jenner er ein stærsta samfélagsmiðlastjarnan í dag.
Kylie Jenner er ein stærsta samfélagsmiðlastjarnan í dag. mbl.is/Ethan Miller_Getty

Þau válegu tíðindi berast að vestan að sjálf Kylie Jenner sé hætt á ketó mataræði. Fréttum ber þó ekki saman enda ekki ljóst hvort Jenner hafi nokkurn tímann verið á ketó mataræðinu og miðað við ást hennar á kolvetnum verður það að teljast fremur ólíklegt.

Eins og fram hefur komið á Matarvefnum sem fylgist að sjálfsögðu náið með þróun mála deildi Jenner sínum dæmigerða morgunverði og innihélt hann ekkert annað en hágæða ketó fóður.

Áður en Kylie Jenner tilkynnti heiminum að hún borðaði eingöngu beikon og avókadó í morgunverð var tíðin allt önnur.

Já, sú var tíðin að ungfrú Jenner útbjó allt öðruvísi morgunverð sem hún sór að hún eldaði á hverjum morgni. Innihélt morgunverðurinn meðal annars french toast, steiktar pylsur með lauk og papriku og auðvitað steikt beikon.

Hér má sjá Jenner útbúa morgunverðinn og þetta er bara býsna vel gert.

Morgunverður að skapi Kylie Jenner, egg, beikon og avocado.
Morgunverður að skapi Kylie Jenner, egg, beikon og avocado. mbl.is/Kylie Jenner
mbl.is/Kylie Jenner
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert