Morgunbollur meistarans

Það jafnast ekkert á við nýbakaðar morgunbollur um helgar.
Það jafnast ekkert á við nýbakaðar morgunbollur um helgar. mbl.is/Colourbox

Hér eru einstakar morgunbollur á ferð – því þær eru á mörkunum að vera muffins eða bollur. Í þessari uppskrift eru bollurnar fullar af grófum hnetum, súkkulaði og döðlum sem veita bragðlaukunum mikla ánægju.

Morgunbollur meistarans (12-16 stk)

  • 25 g ger
  • 4 dl volgt vatn
  • 4 msk. hunang
  • 1 tsk. salt
  • ¼ dl ólífuolía
  • 300 g gróft spelthveiti
  • 75 g hveiti

Annað

  • 100 g dökkt súkkulaði, saxað
  • 100 g valhnetur, saxaðar
  • 50 g heslihnetuflögur
  • 50 g rúsínur
  • 50 g döðlur, saxaðar

Aðferð:

  1. Leysið gerið upp í vatni og bætið hunangi, salti og olíu saman við.
  2. Hrærið báðum hveitunum út í – og hér skal deigið vera eins og hafragrautur. Setjið því næst súkkulaðið, valhnetur, heslihnetuflögur, rúsínur og döðlur saman við. Látið hefast við stofuhita í 45 mínútur eða yfir nótt í ísskáp (og þá jafna sig í 20 mínútur við stofuhita ef deigið fer inn í ísskáp).
  3. Fyllið muffinsformin upp að helming og látið hefast í 20 mínútur í forminu. Bakið við 185°C í 15-20 mínútur.
  4. Berið fram volgar eða við stofuhita.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert