Útieldhúsið mikil prýði fyrir pallinn

Ingibjörg Ósk Jóhannsdóttir fagurkeri með meiru lét draum sinn rætast …
Ingibjörg Ósk Jóhannsdóttir fagurkeri með meiru lét draum sinn rætast og hannaði og útbjó sitt eigiið útieldhús. Samsett mynd

Ingibjörg Ósk Jóhannsdóttir fagurkeri með meiru hafði látið sig dreyma í nokkur ár að útbúa útieldhús á pallinum sínum. Ingibjörg býr á Suðurnesjunum í fallegu einbýlishúsi með góðum palli sem hefur til að bera fyrir útieldhús. Í loks sumars varð draumur hennar um útieldhús að veruleika og nýtur sín vel í fallegu haustveðri enda er hægt að nota útieldhús allan ársins hring þegar veður leyfir.

„Draumaeldhúsið sem ég var með í huga var að byggja fallegt svæði utan um grillið, pallurinn var til staða og grillið átti sinn stað. Mig langaði að gera enn betur og mynda ákveðna umgjörð um svæðið þannig að ég gæti notað útisvæðið við matargerðina og haft um leið huggulegt kringum okkur,“ segir Ingibjörg sem er afar ánægð með útkomuna.

Útieldhúsið hennar Ingibjargar er mkið augnakonfekt og mjög heimilislegt að …
Útieldhúsið hennar Ingibjargar er mkið augnakonfekt og mjög heimilislegt að koma á pallinn til hennar. Ljósmynd/Ingbjörg Ósk

Hannaði útieldhúsið sjálf

Aðspurð segir Ingibjörg að það sé ekki flókið að hanna sitt eigið útieldhús og hver og einn hafi þá líka tækifæri til að gera það að sínu. „Held að það sé smekkur fólks , hvernig maður græjar og prýðir útieldhúsið. Ég hannaði mitt sjálf og vissi nákvæmlega hvernig ég vildi hafa það.“

Ingibjörgu tókst vel til og náði að sameina notagildið og fagurfræðina. „ Ég vildi hafa fallegt í kring um grilliðog fela til að mynda gaskútana. Eftir að ég hafði útfært hvernig ég vildi hafa svæðið tók framkvæmdin ekki nema um það bil 2 vikur, þökk sé góða veðrinu í júlí og ágúst.“

Gefa gömlum hlutum nýtt líf

Þegar koma að velja efnivið var Ingibjörg dugleg að nýta það sem til var og gera góð kaup á afgangsefni. „Ég notaði afgangs spýtur síðan pallurinn var smíðaður og fann afgangs flísar á á fínu verði, borgaði aðeins 800 krónur fyrir þær. Litlu hlutirnir eru bæði gamlir og nýlegir, ég keypti ódýra leirpotta, spreyjaði þá svarta. Það er svo gaman að gefa gömlum hlutum nýtt líf með smá breytingu.“ 

Eykur lífsgæðin að vera með fallegt útieldhús

Eldhúsinnréttingin kemur skemmtilega út, falleg fyrir augað og nýtist líka vel. Grillið fellur inn í innréttinguna á fallegan og áreynslulausan hátt. „Hillurnar undir grillinu eru smíðar inn í innréttinguna, síðan smíðað utan um það. Mér finnst innréttingin vera mikið augnakonfekt fyrir pallinn og ramma grillaðstöðuna vel inn. Borðplássið er snilld, þar er bæði hægt að leggja frá sér hluti og nýta svæðið til matargerðar. Síðan er ég með stóran arinn við hliðina á innréttingunniþar sem við getum bakað pitsur. Borðið nýtist því vel í pitsubakstur.

Síðan er ætlunin að byggja skyggni yfir, þá kemur skjól ef rignir. Þá verður þetta svæðið fullkomið,“ segir Ingibjörg og býst við að það verði oft grillað í vetur þó svo að útieldhúsið verði eflaust minna notað yfir háveturinn. „Það er svo yndislegt að njóta og græja kræsingar úti í fallegu og góðu veðri. Þetta eykur lífsgæðin

Takið eftir hillunum inni í innréttingunni, þær nýtast vel. Einnig …
Takið eftir hillunum inni í innréttingunni, þær nýtast vel. Einnig sést ekki í gaskútinn og vel hefur tekist til að ramma grillið inn í innréttinguna. Ljósmynd/Ingibjörg Ósk
Litlur hlutirnir undirstrika fagurleikann.
Litlur hlutirnir undirstrika fagurleikann. Ljósmynd/Ingibjörg Ósk
Brettin eru frá Magnolia og setja svip sinn á útieldhúsið. …
Brettin eru frá Magnolia og setja svip sinn á útieldhúsið. Fullkomin undir pítsurnar. Haustinu fylgir líka fegurð og Erikurnar undirstrika það. Ljósmynd/Ingibjörg Ósk
Kósí stemning myndast á pallinum og litla borðið og stólarnir …
Kósí stemning myndast á pallinum og litla borðið og stólarnir tveir passa vel inn í umhverfið. Ljósmynd/Ingibjörg Ósk
Framkvæmdin á verkinu tók um það bil tvær vikur eftir …
Framkvæmdin á verkinu tók um það bil tvær vikur eftir að Ingibjörg var búin að ákveða hvernig hún vildi hafa útieldhúsið. Ljósmynd/Ingibjörg Ósk
Ljósmynd/Ingibjörg Ósk
Ljósmynd/Ingibjörg Ósk
Leirpottana átti Ingibjörg til og spreyjaði þá svarta og gaf …
Leirpottana átti Ingibjörg til og spreyjaði þá svarta og gaf þeim þannig nýtt líf. Ljósmynd/Ingibjörg Ósk
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka