Kjúklingaréttur í pestósósu með osti og ólífum

Ljúffengur kjúklingaréttur í pestósósu með osti og ólífum sem er …
Ljúffengur kjúklingaréttur í pestósósu með osti og ólífum sem er sannkölluð veisla fyrir bragðlaukana. Ljósmynd/Gott í matinn

Hér er á ferðinni ljúffengur kjúklingaréttur sem kemur úr smiðju Thelmu Þorbergsdóttir matgæðings sem hún gerði fyrir uppskriftasíðuna Gott í matinn. Í réttinum sameinast kjúklingur, ferskur ostakubbur og ómótstæðilegar ólífur í sannkallaða veislu fyrir bragðlaukana. Ólífur sem eldaðar eru með kjúklingnum taka í sig bragð frá sósunni svo þær mildast aðeins og því ættu þeir sem eru ekki hrifnir af ólífum að láta slag standa og prófa þennan rétt. Það verður enginn sælkeri svikinn af þessum rétt.

Kjúklingaréttur í grænu pestó með osti og ólífum

  • 1 msk. ólífuolía
  • 15 g smjör
  • 8-10 stk. úrbeinuð kjúklingalæri
  • 1 tsk. ítölsk kryddblanda með hvítlauk
  • 1 tsk. salt
  • 1 tsk. svartur pipar
  • 70 g grænt pestó
  • 2 dl matreiðslurjómi frá Gott í matinn
  • 3 stk. hvítlauksrif
  • 200 g ostakubbur frá Gott í matinn
  • 50 g svartar ólífur
  • fersk basilíka eftir smekk

Aðferð:

  1. Byrjið á því að hita ofninn í 180°C.
  2. Setjið smjör og olíu á pönnu og hitið.
  3. Kryddið kjúklingalærin með ítalskri hvítlauksblöndu, salti og pipar og steikið á pönnunni í 4 mínútur.
  4. Gott er að steikja kjúklinginn við háan hita, í um það bil 2 mínútur á hvorri hlið fyrir sig, eða þar til hann hefur brúnast örlítið.
  5. Setjið pestó, rjóma og hvítlauk saman í skál og blandið vel saman.
  6. Bætið svo salti og pipar við og hrærið.
  7. Setjið kjúklinginn í eldfast mót, hellið restinni af smjörinu og olíunni yfir kjúklinginn.
  8. Skerið ostakubbinn niður í um 1 cm bita og setjið yfir kjúklinginn ásamt ólífum.
  9. Hellið rjómalöguðu pestóblöndunni yfir kjúklinginn og eldið inn í ofn við 180°C hita í 25 mínútur, eða þar til kjúklingurinn er fulleldaður.
  10. Saxið niður ferska basilíku og setjið yfir kjúklinginn.
  11. Berið fram með fersku salati, pasta, sætum kartöflum eða því sem hugurinn girnist.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka