Ljúffengur nautapottréttur í rauðvínssósu

Unaðslega ljúffengur nautapottréttur í rauðvínssósu og kartöflumús á vel við …
Unaðslega ljúffengur nautapottréttur í rauðvínssósu og kartöflumús á vel við á fallegu vetrarkvöldi. Ljósmynd/Berglind Hreiðars

Þessi nautapottréttur er unaðslega ljúffengur og á vel við á fallegu vetrarkvöldi. Pottréttur og kartöflumús er fullkomin blanda til að njóta í faðmi fjölskyldunnar við huggulegheit og kertaljós. Heiðurinn af þessari uppskrift á Berglind Hreiðars lífsstíls- og matarbloggarinn sem allir þekkja hjá Gotterí og gersemar. Berglind kann sitt fag vel og er líka fagurkeri sem ber matinn fallega fram á borð.

Nautapottréttur í rauðvínssósu

Fyrir 6

Pottréttur

  • 1,2 kg nautainnlæri (í sneiðum), eða annað svipað nautakjöt
  • 1 stór laukur
  • 500 g gulrætur
  • 4 hvítlauksrif
  • 60 g hveiti
  • 750 ml vatn
  • 50 ml Oscar fljótandi nautakraftur
  • 500 ml Muga rauðvín eða rauðvín að eigin val
  • 2 msk. tómatpúrra
  • 4 lárviðarlauf
  • 3 timiangreinar
  • Steikarkrydd
  • Salt + pipar
  • Ólífuolía til steikingar

Aðferð:

  1. Skerið kjötið í bita (c.a 5 x 5 cm)
  2. Steikið það upp úr ólífuolíu, brúnið vel og kryddið eftir smekk. Steikja þarf kjötið í 2-3 skömmtum og geymið bitana síðan til hliðar á disk.
  3. Skerið laukinn niður í sneiðar og gulræturnar í bita, setjið í pottinn sem þið steiktuð kjötið í án þess að þrífa hann á milli.
  4. Bætið aðeins ólífuolíu saman við og leyfið að malla við meðalhita þar til laukurinn mýkist, rífið hvítlaukinn einnig saman við í lokin.
  5. Stráið hveitinu næst yfir grænmetið og hrærið aðeins í öllu saman og hellið síðan vatni, nautakrafti, rauðvíni og tómatpúrru saman við og hrærið vel saman.
  6. Setjið kjötið nú aftur í pottinn ásamt lárviðarlaufum og timian, náið suðunni upp að nýju og lækkið síðan alveg niður, setjið lokið á pottinn og leyfið að malla í 2 klukkustundir.
  7. Sjóðið kartöflur fyrir kartöflumúsina svo þær séu tilbúnar að þessum 2 klukkustundum liðnum.
  8. Takið lokið af pottinum eftir 2 klukkustundir og leyfið að malla áfram í um 15-20 mínútur á meðan þið útbúið kartöflumúsina.
  9. Saltið mögulega aðeins meira eða bætið við nautakrafti, allt eftir smekk.

Kartöflumús

  • 1,3 kg kartöflur
  • 50 g smjör
  • 2 msk. sykur
  • 1 tsk. salt
  • 200 ml nýmjólk

Aðferð:

  1. Sjóðið og flysjið kartöflurnar (eða öfugt, það má líka).
  2. Setjið þær í hrærivélarskálina ásamt smjöri, sykri og salti og blandið saman á lægstu stillingu.
  3. Bætið mjólkinni saman við í nokkrum skömmtum og skafið niður á milli.
  4. Berið fram með pottréttinum og njótið vel.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert