Tveir veitingastaðir opna í Krónunni á Granda

Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, og Silja Mist Sigurkarlsdóttir, forstöðumaður markaðs- …
Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, og Silja Mist Sigurkarlsdóttir, forstöðumaður markaðs- og þjónustusviðs N1. Ljósmynd/Ólafur Már

Tveir nýir veitingastaðir, Ísey Skyr Bar og Nesti ferskt og fljótt, hafa nú verið opnaðir innan Krónunnar á Granda með það að markmiði að auka þjónustu til viðskiptavina og bæta þeirra upplifun enn frekar. Stöðunum er ætlað að þjóna þeim hópi viðskiptavina sem kýs að grípa með sér hollan og góðan tilbúinn mat. Um er að ræða fyrstu útibú veitingastaðanna í eigu N1 sem opna fyrir utan þjónustustöðvar fyrirtækisins.

Hugmyndafræðin er „búð í búð“

Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, segir staðina tvo og það úrval rétta sem þar fæst, ríma vel við þá sýn og áherslur sem Krónan vinnur eftir hvað varðar upplifun og lýðheilsu. „Hugmyndafræðin á bak við „búð í búð“ innan okkar stærstu verslana hefur verið afar vel tekið af okkar viðskiptavinum, en hingað til hefur úrvalið á þeim stöðum einna helst miðast við viðskiptavini sem gera matarinnkaupin seinnipart dags. Um 20% viðskiptavina Krónunnar kjósa að versla í matinn fyrir hádegi utan álagstoppa seinnipartinn og með tilkomu Ísey Skyr Bar og Nesti ferskt og fljótt getur þessi hópur því gætt sér á hollum morgunverði eða millimáli í einni og sömu innkaupaferðinni,“ segir Guðrún.

Koma betur til móts við þarfir viðskiptavina

Silja Mist Sigurkarlsdóttir, forstöðumaður markaðs- og þjónustusviðs N1, segir það ánægjulegt að opna útibú Ísey í fyrsta sinn innan Krónunnar þar sem fjöldi viðskiptavina fari í gegn á degi hverjum. Að auki sé spennandi að kynna nýja ásýnd og áherslur Nesti sem hafi farið í gegnum gagngera endurmörkun með áherslu á hollan mat fyrir fólk á ferðinni. „Við erum að innleiða nýja sýn þar sem komið er betur til móts við þarfir viðskiptavina og á sama tíma gefið þeim kost á ferskum og góðum valkostum í dagsins amstri. Þetta er því fyrsta skrefið í þeirri vegferð en við munum í framhaldinu bjóða upp á Nesti ferskt og fljótt á okkar þjónustustöðvum. Við erum spennt að sjá hvernig viðskiptavinir Krónunnar á Granda taka á móti stöðunum okkar,“ segir Silja.

Íslenska skyrið í aðalhlutverki

Ísey býður upp á ferska og holla safa og skálar þar sem íslenska skyrið er í aðalhlutverki og á matseðli Nesti ferskt og fljótt eru djúsar, samlokur, kaffi og salöt. Í verslun Krónunnar á Granda er nú þegar í boði fjölbreytt flóra minni veitingastaða þar sem viðskiptavinum býðst að grípa með sér fljótlega og tilbúna rétti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert