Myndir: Nýr og stærri Loksins í Leifsstöð

Loksins Bar á Keflavíkurflugvelli gengur í endurnýjun lífdaga, en nýr …
Loksins Bar á Keflavíkurflugvelli gengur í endurnýjun lífdaga, en nýr og stærri Loksins Café & Bar hefur verið opnaður í suðurbyggingu vallarins. Samsett mynd

Loksins Bar á Keflavíkurflugvelli gengur í endurnýjun lífdaga, en nýr og stærri Loksins Café & Bar hefur verið opnaður í suðurbyggingu vallarins. Loksins Café & Bar býður upp á breiðara vöruúrval í bæði mat og drykk í glæsilegu nýju rými hönnuðu af HAF Studio.

Auk þess að bjóða upp á gott úrval drykkja líkt og gestir flugvallarins hafa notið síðustu ár, býður Loksins Café & Bar upp á fjölbreyttan matseðil með nýbökuðu handgerðu bakkelsi, morgunverðarskálum, salötum, fersku ciabatta og girnilegum heitum réttum. 

Íslensk hráefni í aðalhlutverki

Yfirmatreiðslumaður Loksins Café & Bar, Semjon Karopka, hefur margra ára reynslu úr veitingageiranum á Íslandi. Hann er meðal annars eigandi og yfirkokkur á veitingastöðunum Pronto Pasta í Borg29 mathöll og Hipstur í Gróðurhúsinu í Hveragerði.

„Það hefur verið tilhlökkunarefni að opna Loksins Café & Bar aftur á flugvellinum í nýrri mynd og ég er mjög stoltur af þeim matseðli sem við bjóðum gestum flugvallarins upp á. Lögð er áhersla á íslenskt hráefni og við höfum verið að þróa nýja rétti og bjóðum upp á girnilegt úrval í bæði mat og drykk þannig að allir ættu að geta fengið eitthvað við sitt hæfi. Við erum með frábært framboð af góðum morgunverðarréttum, íslensku bakkelsi og allskonar smáréttum sem kitla bragðlaukana og passa vel við Loksins Café & Bar stemninguna frá morgni til kvölds,“ segir Semjon.

Mikið er lagt upp úr hönnun staðarins og heiðurinn að …
Mikið er lagt upp úr hönnun staðarins og heiðurinn að hönnuninni eiga hjónin hjá HAF Studio. Ljósmynd/Loksins

Mikið lagt upp úr hönnun

Nýr Loksins Café & Bar er meira afmarkaður en áður fyrir betri hljóðvist og stemningu en HAF Studio á veg og vanda að hönnun staðarins. Loksins Bar opnaði fyrst árið 2015 á Keflavíkurflugvelli og var hannaður af HAF Studio í samstarfi við Hjalta Karlsson og hönnunarstofu hans Karlssonwilker.

Við hönnun staðarins var upphaflega hugmyndin að endurskapa alvöru reykvíska barstemningu og kynna ýmsar íslenskar hefðir í mat, drykk og menningu fyrir erlendum ferðamönnum. 

Hlýleikinn er í fyrirrúmi í bland við rústik stíl.
Hlýleikinn er í fyrirrúmi í bland við rústik stíl. Ljósmynd/Loksins

Á nýjum og stærri Loksins Café & Bar er öll hönnun byggð á þessum grunni. Barinn státar af einu besta útsýninu á flugvellinum þar sem langhlið staðarins vísar út á flugbrautina til suðurs. Við inngang staðarins er skeifulaga bar sem skiptir staðnum í tvö svæði; annað hugsað sem hefðbundið kaffihús en hitt sem ölstofa. 

Rýmið er stærra og rúmbetra.
Rýmið er stærra og rúmbetra. Ljósmynd/Loksins

„Við erum virkilega ánægð og stolt að Loksins Bar öðlist framhaldslíf á nýjum og betri stað sem Loksins Café & Bar. Það er klárt mál að þetta verður fyrsta stopp upp á velli í næstu utanlandsferð,“ segir Hafsteinn Júlíusson, eigandi HAF Studio. Gaman er að geta þess að 8. mars árið 2015 voru þau hjá HAF Studio óða önn að setja upp myndir fyrir opnun Loksins bar – akkúrat sama dag 2024 voru þau í því verkefni fyrir Loksins í endurbættri útgáfu.

Í efnisvali var áhersla lögð á hlýleika, fáguð efni og litapallettu í grænum tónum sem hefur róandi áhrif og umlykur gesti með hlýju. Öll húsgögn og innréttingar á staðnum eru íslensk hönnun. Á veggjum staðarins er áfram myndefni frá Karlssonwilker og bætast við sérhönnuð verk frá Hugleiki Dagssyni, sem endurspegla íslenska dægurmenningu og er ætlað að vekja samtal milli gesta staðarins, bæði erlendra og íslenskra.

Bætt upplifun gesta

Ný staðsetning Loksins Café & Bar er við C-hliðin á flugvellinum, í næsta nágrenni við veitingastaðinn Hjá Höllu.

„Loksins höfum við opnað Loksins Café & Bar aftur og núna á mun stærra svæði í fallegu og björtu rými í suðurbyggingu flugvallarins. HAF Studio hefur hugsað út í hvert smáatriði til að skapa huggulegt rými fyrir gesti til að upplifa sannkallaða íslenska miðborgarstemningu,“ segir Gunnhildur Erla Vilbergsdóttir, deildarstjóri verslunar og veitinga á Keflavíkurflugvelli. „Við erum stöðugt að betrumbæta upplifun gesta flugvallarins. Loksins Café & Bar er skyldustopp margra gesta okkar og við höfum sannarlega fundið fyrir söknuði gesta á Loksins. Það gleður okkur því að geta nú aftur boðið upp á þennan góða viðkomustað, nú í stærri og bættri mynd.“ Fyrir gesti sem eru á hraðferð býður Loksins Café & Bar gestum upp á gott úrval tilbúinna rétta og drykkja í kæli hjá sjálfsafgreiðslukassa sem er opinn allan sólarhringinn.

Bleikir kokteilar og hanastél fyrir gesti

Búið er að endurbæta bar- og matseðilinn auk þess sem boðið eru upp á girnilegar kræsingar sem gleðja bæði augu og munn, Sem dæmi um árstíðabundinn kokteil má nefna Pink Spring sem er einstaklega ferskur kokteill með bleiku gini og ber meðal annars keim af rabarbara og sítrónu. Pink Spring verður í boði nú á vormánuðum og ber nafn með rentu.

Pink Spring sem er einstaklega ferskur kokteill með bleiku gini …
Pink Spring sem er einstaklega ferskur kokteill með bleiku gini og ber meðal annars keim af rabarbara og sítrónu. Ljósmynd/Loksins

Lava Fields er einn af nýju Loksins hanastélunum. Hann inniheldur meðal annars Brennivín, rúbín súkkulaðisýróp og  koladuft. Í báða kokteila þessa kokteila er notað Aquafaba, í stað eggjahvítu, eru þeir því 100% vegan.

Lava Fields lítur vel út.
Lava Fields lítur vel út. Ljósmynd/Loksins
Espresso martini nýtur ávallt mikillar hylli.
Espresso martini nýtur ávallt mikillar hylli. Ljósmynd/Loksins
Girnilega rétti er að finna á matseðlinum.
Girnilega rétti er að finna á matseðlinum. Ljósmynd/Loksins
Litríkt og næringarríkt salat.
Litríkt og næringarríkt salat. Ljósmynd/Loksins
Litríkir og ferskir kokteilar laða til sín gesti.
Litríkir og ferskir kokteilar laða til sín gesti. Ljósmynd/Loksins
Alls konar smáréttir eru í boði.
Alls konar smáréttir eru í boði. Ljósmynd/Loksins
Ómótstæðilegt salat.
Ómótstæðilegt salat. Ljósmynd/Loksins
Klassískin er líka boði.
Klassískin er líka boði. Ljósmynd/Loksins
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert