Syndsamlega góðir snúðar með glassúr

Þessir dúnmjúki snúðar eru syndsamlegar ljúffengir og hér er búið …
Þessir dúnmjúki snúðar eru syndsamlegar ljúffengir og hér er búið að setja þá í páskabúning. Ljósmynd/Berglind Hreiðars

Þessir snúðar með fyllingu og glassúr eru syndsamlega góðir. Þeir er dúnmjúkir og svo ljúffengir að þeir bráðna í munni. Berglind Hreiðars hjá Gotterí og gersemar á heiðurinn af þessari dásamlegu uppskrift og er búin að setja snúðana í páskabúning.

Það er vel hægt að mæla með þessum og upplagt að bjóða upp á snúðana með kaffinu á vinnustaðnum ef ykkur langar að brjóta upp hversdagsleikann og gleðja vinnufélagana. Eða bjóða heim í páskakaffi og taka forskot á sæluna fyrir súkkulaðihátíðina miklu.

Berglind deildi með fylgjendum sínum á Instagram-síðu sinni þessu myndbandi sem kitlar bragðlaukana.

Snúðarnir eru líka svo fallegir.
Snúðarnir eru líka svo fallegir. Ljósmynd/Berglind Hreiðars

Snúðar með glassúr

18-20 stk

Snúðadeig

  • 750 g hveiti
  • 70 g sykur (+ 1 msk með gerinu)
  • ½ tsk. salt
  • 250 ml nýmjólk
  • 250 ml vatn
  • 1 poki þurrger (um12 g)
  • 80 g smjör (brætt)
  • 1 tsk. kardimommudropar
  • Matarolía

Aðferð:

  1. Hrærið hveiti, sykri og salti saman í skál og leggið til hliðar.
  2. Hitið mjólk og vatn saman þar til það velgist, hrærið þá 1 msk. af sykri og þurrgerinu saman við og leyfið að standa í um 5 mínútur.
  3. Blandið næst öllu saman, þurrefnum, gerblöndu, smjöri og kardimommum og hrærið með króknum í nokkrar mínútur.
  4. Penslið stóra skál að innan með matarolíu og veltið deigkúlunni upp úr henni, plastið síðan skálina og leyfið að hefast við stofuhita í 40 mínútur.
  5. Stráið hveiti á borðið og ýtið deiginu varlega til hliðanna með fingrunum þar til það myndar ferhyrning sem er um 40 x 60 cm.
  6. Penslið með smá bræddu smjöri og setjið fyllinguna á deigið (sjá hráefni hér fyrir neðan)
  7. Rúllið lauslega upp og skerið niður í um 3 cm þykka snúða.
  8. Raðið snúðunum á ofnplötur með gott bil á milli og setjið inn í 50°C heitan ofn í 30 mínútur til hefunar. Gott er að setja um 100 ml af vatni í botninn á ofninum til að halda raka í honum á meðan snúðarnir hefast stendur.
  9. Takið snúðana síðan út og hækkið hitann í 200°C á ofninum og bakið þá í 12-14 mínútur eða þar til þeir gyllast vel á köntunum.
  10. Leyfið að kólna áður en þið setjið glassúr ofan á og síðan er fallegt að skreyta með karamellukurli og/eða söxuðum súkkulaðieggjum.
  11. Berið fram á fallega dekkað borð og njótið.

Fylling í snúða

  • 40 g brætt smjör
  • 80 g sykur
  • 80 g púðursykur
  • 1 ½ msk. kanill

Aðferð:

  1. Penslið deigið með bræddu smjörinu.
  2. Hrærið saman báðum tegundum af sykri og kanil, dreifið jafnt yfir deigið.

Súkkulaðiglassúr

  • 250 g flórsykur
  • 80 g brætt smjör
  • 2 msk. bökunarkakó
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 3 msk. heitt vatn

Aðferð:

  1. Pískið allt saman í skál þar til kekkjalaust.
  2. Bætið flórsykri við ef þið viljið þykkari glassúr og smá heitu vatni ef það þarf að þynna betur.

Glassúr

  • 250 g flórsykur
  • 3-4 msk. nýmjólk
  • Matarlitur

Aðferð:

  1. Pískið allt saman í skál þar til kekkjalaust.
  2. Bætið flórsykri við ef þið viljið þykkari glassúr og smá rjóma ef það þarf að þynna betur.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert