Móbergs Massarína á eftir að valda glundroða

Móbergs massarínan á eftir að valda glundroða hún er svo …
Móbergs massarínan á eftir að valda glundroða hún er svo freistandi. Ljósmynd/Brynja Dadda Sverrisdóttir

Þá er komið að helgarbakstrinum sem er ómissandi hér á matarvefnum og nýtur mikilla vinsælda. Hér er á ferðinni er mjög einföld kaka en svo góð og með mildu marsipanbragði sem kemur úr smiðju Brynju Döddu Sverrisdóttur ofan úr fjallinu í Kjós úr Móberginu. Brynja Dadda er ástríðubakari og heillar alla sína gesti með sínum ómótstæðilegu kræsingum. Þessi uppskrift á eftir að valda glundroða, því kakan er svo góð. Spurning hver fær síðustu sneiðina. Kakan er þétt og ekkert lyftiduft er í þessari uppskrift og áferðin er fullkomin.

„Í marga daga er ég búin að hafa í huga að baka marsipanköku. Það var farið að naga mig svo ég ákvað að reyna að finna uppskrift, sem ég átti einhvern tímann til, en nú er orðið ansi langt síðan þessi hefur verið bökuð. Samt er hún svo góð og ofureinföld,“ segir Brynja Dadda og bætir við að hana minni að uppskriftin komi af danskri uppskriftasíðu upphaflega.

Gott að bera kökuna fram með þeyttum rjóma og sumir eru líka til í niðursoðna ávexti með.

Móbergs massarínan er fullkomin fyrir helgarkaffið.
Móbergs massarínan er fullkomin fyrir helgarkaffið. Ljósmynd/Brynja Dadda Sverrisdóttir

Móbergs Massarína

  • 200 g marsipan, rifið gróft niður
  • 200 g sykur
  • 200 g smjör, brætt
  • 4 egg
  • 120 g hveiti
  • 100 g suðusúkkulaði ofan á

Aðferð:

  1. Byrjið á því að hita ofninn í 180°C hita.
  2. Hrærið  saman rifnu marsipani og sykri.
  3. Bræddu smjöri bætt við. Hrært þar til nokkuð slétt og samfellt.
  4. Bætið við einu eggi í einu og hrærið svolítið  á milli.
  5. Að lokum er hveitið sett út í. Það þarf ekki að hræra mikið eftir það.
  6. Setjið kökuna í ofninn og bakið í 35 mínútur, kannski 3 mínútur til eða frá, ofnar eru misjafnir.
  7. Vert er að setja einfalda súkkulaðibráð ofan á. Það mætti líka vera glassúr. Ykkar er valið.
  8. Berið fram og njótið. 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert