Ný vegansamloka hjá Lemon lítur dagsins ljós

Ný vegansamloka hefur litið dagsins ljós á Lemon unnin í …
Ný vegansamloka hefur litið dagsins ljós á Lemon unnin í samstarfi við Ellu Stínu, eiganda Ella Stína Vegan. Gurrý Indriðadóttir markaðsstjóri Lemon fagnar að geta brugðist við eftirspurn viðskiptavina á veganvörum. Samsett mynd

Nýjasta nýjungin hjá Lemon er vegansamloka unnin í samstarfi við Ellu Stínu, eiganda Ella Stína Vegan. Forsvarsmenn Lemon hafa fundið fyrir aukinni eftirspurn eftir veganvörum og ákváðu að bregðast við með Vegancado sem verðu fyrst um sinn sumarsamloka.

„Við erum alltaf að horfa til nýjunga og höfum unnið með frábæru fólki að skemmtilegum og góðum vörum undanfarin ár. Við finnum fyrir aukinni eftirspurn eftir veganvörur hjá okkur og því fengum við Ellu Stínu, eiganda Ella Stína Vegan, til liðs við okkur. Ákveðið var að vinna með vinsælustu samlokuna okkar Chickencado og skoða hvernig við gætum breytt henni í vegan. Samlokan verður til að byrja með í boði í sumar en ef vel gengur og hún fer vel í viðskiptavini okkar þá fer hún á matseðilinn,“ segir Gurrý Indriðadóttir, markaðsstjóri Lemon.

Kjúllabitarnir unnir úr pea-próteini

Samlokan inniheldur vegankjúllabita, tómata, avókadó, hvítlauks ailoli og pestó. Kjúllabitarnir eru unnir úr peaöprótein sem er prótein unnið úr edamame-baunum sem gerir þá næringarríka af próteini.

„Ég mæli með vegan kjúllabitunum í Vegancado samlokunni. Áferðin á bitunum er eins og á kjúklingi og þeir sem borða kjúkling segjast ekki finna mun á kjúklingi og vegankjúllabitunum. Þegar kom að vali á bitunum þá var úr vöndu að velja, en mikilvægt er að finna góða samstarfsaðila sem framleiða eftir okkar gæðakröfum.  Ég hef verið í samstarfi við fyrirtæki í Austurríki sem framleiðir vegan kjúllabitana en þeir vinna aðeins með úrvals hráefni úr sínu nærumhverfi,“ segir Ella Stína.

Gott kombó er gulli betra

„Á Lemon er vinsælt að fá sér samloku og djús, svokallað kombó. Með Vegancado mælum við með djúsinum sem við unnum með Hildi Ómars, Beetlejuice. Hann er hollur, fullur af vítamínum og járni. Hann hefur sérstaklega verið vinsæll hjá ófrískum konum þar sem hann er mjög járnríkur,“segir Gurrý.

„Mælum með að prófa vegan, fyrir eru allir djúsarnir á Lemon að sjálfsögðu vegan og próteindrykkurinn Power Plant sem Telma Matthíasdóttir gerði og hann hefur heldur betur slegið í gegn. Hinar sívinsælu partíkúlur Tobbu eru vegan og eru ómissandi með kaffibollanum á Lemon fyrir þá sem þekkja til,“ segir Gurrý að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka