Rautt spjald og vippa beint á markið (myndskeið)

Chelsea og Burnley skildu jöfn, 2:2, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag, þrátt fyrir að Chelsea hafi í tvígang komist yfir og verið einum fleiri frá 40. mínútu.

Cole Palmer skoraði bæði mörk Chelsea, það fyrra úr víti þegar hann vippaði beint á markið. Josh Cullen og Dara O‘Shea skoruðu mörk Burnley. Lorenz Assignon fékk rautt spjald hjá Burnley er hann braut á Mykhaylo Mudryk innan teigs.

Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert