Skrifaði undir hjá Chelsea

Alfie Gilchrist í leik með Chelsea.
Alfie Gilchrist í leik með Chelsea. AFP/Glyn Kirk

Enska knattspyrnufélagið Chelsea hefur komist að samkomulagi við varnarmanninn unga, Alfie Gilchrist, um að hann leiki áfram með liðinu næstu tvö ár.

Gilchrist, sem er alinn upp hjá félaginu, skrifaði undir samning sem gildir til sumarsins 2026.

Hann er tvítugur miðvörður sem getur einnig leyst stöðu hægri bakvarðar.

Gilchrist lék sinn fyrsta leik fyrir Chelsea undir lok síðasta árs og hefur alls komið við sögu í tólf leikjum á yfirstandandi tímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert