Eftir sigur Chelsea á Manchester United, 4:3, í síðustu umferð ensku úrvalsdeildar karla í knattspyrnu tók deildin saman myndskeið af öllum leikjum tímabilsins sem enduðu 4:3.
Meðal annars er sigur Liverpool á Fulham og sigur Arsenal á Luton þar inn.
Sigurmörkin úr leikjunum má sjá í spilaranum hér að ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.