Harrrison fær Hollywoodstjörnu

Paul McCartney talar við Oliviu Harrison.
Paul McCartney talar við Oliviu Harrison. Reuters

Stjarna, með nafni tónlistarmannsins George Harrisons, var afhjúpuð á Frægðarveginum svonefnda í Hollywood í kvöld. Meðal viðstaddra voru ekkja og sonur Harrisons og Paul McCartney, félagi hans í Bítlunum.

Harrison lést af völdum krabbameins árið 2001, 58 ára að aldri. Útgáfufélagið Capiton tilkynnti í kvöld, að tónlist hans yrði gefin út að nýju.

Olivia, ekkja Harrisons, og Dhani, sonur þeirra, afhjúpuðu stjörnuna. Nú eru 2382 stjörnur á gangstéttinni við Hollywood Boulevard með nöfnum leikara og annarra listamanna sem tengst hafa kvikmyndum. 

Harrison var gítarleikari Bítlanna. Þótt hann væri í skugga McCartheys og Johns Lennons sem lagasmiður samdi hann nokkur af þekktustu lögum hljómsveitarinnar, þar á meðal Taxman, Here Comes the Sun og Something.

Blóm, sem Olivia Harrison lagði á stjörnuna með nafni Georges.
Blóm, sem Olivia Harrison lagði á stjörnuna með nafni Georges. Reuters
Gestir við athöfnina í Hollywood í dag.
Gestir við athöfnina í Hollywood í dag. Reuters
Dhani og Olivia Harrison.
Dhani og Olivia Harrison. Reuters
Dhani og Olivia Harrison taka á móti enska leikaranum Eric …
Dhani og Olivia Harrison taka á móti enska leikaranum Eric Idle. Reuters
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Fyrr eða síðar munu öll kurl koma til grafar og því engin ástæða til þess að vera að herða á hlutunum. Leggðu þitt af mörkum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Fyrr eða síðar munu öll kurl koma til grafar og því engin ástæða til þess að vera að herða á hlutunum. Leggðu þitt af mörkum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg