Paris Hilton og Britney Spears þykja verst klæddu stjörnurnar

Herra Blackwell fer ómjúkum höndum um stuðstúlkurnar Britney Spears og …
Herra Blackwell fer ómjúkum höndum um stuðstúlkurnar Britney Spears og Paris Hilton. Reuters

Stöllurnar Paris Hilton og Britney Spears hafa verið útnefndar verst klæddu konur í heimi, en niðurstöðurnar er að finna á bandarískum lista sem heldur skráningar yfir svokölluð „tískuslys“ fræga fólksins.

Tískurýnirinn herra Blackwell setti þær Hilton og Spears saman í efsta sætið og lét fylgja með að þær væru bæði smekklausar og þær skorti allan stíl. Blackwell hóf að birta listann árið 1960 og hefur gert það allar götur síðan.

Vinkonurnar, sem hafa oftar en ekki sést saman úti á lífinu, voru „tvær baunir í fræbelg sem fékk allt of mikla umfjöllun,“ bætti hann við.

Á sama tíma og þetta gerist hefur Hilton lýst yfir sakleysi sínu fyrir dómara í Los Angeles, en hún er sökuð um að hafa ekið undir áhrifum áfengis.

Hótelerfinginn var handtekin í Hollywood í september sl. Hún mætti ekki fyrir dómstóla í gær en lögmaður hennar kom málsvörn hennar á framfæri.

Á eftir þeim Hilton og Spears kom Camilla Parker Bowles, hertogaynjan af Cornwall. Hún þótti einfaldlega vera púkaleg.

Leikkonan Lindsay Lohan hefur hrakað mikið að mati Blackwells og söngkonan Christina Aguilera þykir grófgerð og stíllaus.

Að auki fengu Mariah Carey, Paula Abdul og Sharon Stone að heyra það.

Það kveður hinsvegar við annan tón hjá Blackwell hvað varðar leikkonurnar Kate Winslet, Helen Mirren, Angelinu Jolie, Beyonce og Katie Holmes. Þær fá allar toppeinkun.

Hertogaynjan af Cornwall og eiginkona Karls Bretaprins er „hertogaynjan af …
Hertogaynjan af Cornwall og eiginkona Karls Bretaprins er „hertogaynjan af púkó“ að mati herra Blackwells. Reuters
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Gamall vinur gefur þér góð ráð í dag. Dragðu djúpt andann og veltu því fyrir þér, hvaða breytingar þú vilt gera.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Gamall vinur gefur þér góð ráð í dag. Dragðu djúpt andann og veltu því fyrir þér, hvaða breytingar þú vilt gera.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir