Spítalaforstjóri aftur með brotinn fót

Hjúkrunarfræðingurinn á bráðamóttöku Landspítalans sem tók á móti Magnúsi Péturssyni, forstjóra spítalans, vegna fótbrots í fyrradag var sá sami og tók á móti honum fótbrotnum í sumar. „Hún varð nú svolítið hissa," segir Magnús sem í þetta skipti rann á svelli á gangstétt fyrir utan heilbrigðisráðuneytið þegar hann var á leið til fundar við ráðherrann.

„Það flísaðist upp úr leggnum sem gengur niður í ökkla," greinir forstjórinn frá. Slysið í sumar varð þegar hestur sparkaði í Magnús með þeim afleiðingum að hann fékk opið fótbrot á sköflungi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka