Grunur um annan ísbjörn

Fullvaxið bjarndýr var fellt við Þverárfjallsveg nýverið.
Fullvaxið bjarndýr var fellt við Þverárfjallsveg nýverið. mbl.is/Kristján

Heimilisfólkið á bænum Hrauni á Skaga hefur tilkynnt lögreglu að hugsanlega hafi sést til ísbjarnar á þessum slóðum í dag, samkvæmt upplýsingum mbl.is. Lögreglan er á leiðinni til að kanna málið og hefur gert varúðarráðstafanir, m.a. lokað vegum í nágrenninu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert