Verðmætt þýfi fannst

Lögreglumenn auðgunabrotadeildar með hluta þýfisins
Lögreglumenn auðgunabrotadeildar með hluta þýfisins mbl.is/Júlíus

Töluvert magn af þýfi fannst við húsleitir sem gerðar voru á tveimur stöðum á höfuðborgarsvæðinu í vikunni. Á meðal þess sem fannst voru tveir dýrir rafmagnsgítarar, tölvur, tölvuskjáir og myndavélar. Þá fundust loftbyssa og ónothæfur riffill í húsakynnunum.

Lögregla veitir ekki nánari upplýsingar um það hvar þýfið fannst en það mun hafa verið á höfuðborgarsvæðinu.  

mbl.is/Júlíus
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert