Lýsa stuðningi við vinnu vegna efnahagsvanda

Frá formannafundi Starfsgreinasambandsins í kvöld.
Frá formannafundi Starfsgreinasambandsins í kvöld. mbl.is/hag

Formenn aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins funduðu í kvöld um aðsteðjandi efnahagsvanda og mögulega aðkomu lífeyrissjóðanna að lausn þess vanda og skilmála verkalýðshreyfingarinnar í því sambandi.

Á fundinum var samþykkt ályktun þar sem lýst er fullum stuðningi við þá vinnu, sem forsvarsmenn verkalýðshreyfingairnnar og lífeyrissjóða hafa komið að undanfarna sólahringa og fullu trausti við áframhaldandi vinnu forsvarsmanna sambandsins í þeirri krefjandi stöðu sem nú sé uppi.

Ályktunin er eftirfarandi:

„Formannafundur aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands, haldinn í húsnæði ríkissáttasemjara 5. október 2008, lýsir fullum stuðningi við þá vinnu sem forsvarsmenn verkalýðshreyfingairnnar og lífeyrissjóða hafa komið að undanfarna sólahringa, til lausnar á þeim vanda sem nú blasir við íslensku efnahags- og atvinnulífi. Fundurinn lýsir einnig fullu trausti við áframhaldandi vinnu forsvarsmanna sambandsins í þeirri krefjandi stöðu sem við öll stöndum frammi fyrir. Starfsgreinasamband Íslands stendur einhuga með félögum sínum innan Alþýðusambandins í viðræðum þess við Samtök atvinnulífsins og ríkisvaldið um aðsteðjandi vanda."

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert