Lýst eftir 15 ára pilti

Ingvar Örn Arnarsson.
Ingvar Örn Arnarsson.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ingvari Erni Arnarssyni, 15 ára. Hann er til heimilis í Reykjavík, og hvarf af heimili sínu þriðjudaginn 21. október.

Ingvar er um 1,77 m á hæð með græn augu, rauðbirkinn og rauðhærður. Þegar hann fór að heiman var hann klæddur í ljósbláar gallabuxur, svarta skó, rauða peysu og í dökkum (svarbláum) úlpujakka sem nær niður á mið læri. Hann var með rauða húfu og og bláan bakpoka.
 
Þeir sem upplýsingar geta gefið varðandi verustað Ingvars Arnar eru vinsamlegast beðnir um að hringja í síma 444-1100 hjá lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert