Reynir biðst afsökunar

Reynir Traustason, ritstjóri DV hyggst sitja áfram á stóli ritstjóra. Reynir varð uppvís að því að láta undan þrýstingi og birti ekki frétt um Sigurjón Árnason, fyrrverandi bankastjóra Landsbankans. Fréttin snerist um að Sigurjón hefði komið á fót ráðgjafafyrirtæki í húsnæði Landsbankans og vonaðist í framhaldi eftir verkefnum frá bankanum.

Í upptöku af samtali Jóns Bjarka Magnússonar, fyrrverandi blaðamanns á DV og Reynis Traustasonar, sem spiluð var í Kastljósi í gærkvöld, segir Reynir Traustason, ritstjóri DV, beinum orðum við Jón Bjarka að frétt um ráðgjafafyrirtæki Sigurjón Þ. Árnasona, fyrrverandi bankastjóra Landsbankans, verði ekki birt vegna hótana frá mönnum sem hafi framtíð blaðsins á valdi sínu. Það sé spurning um líf eða dauða blaðsins að umrædd frétt veðri ekki birt. Jón Bjarki sætti sig ekki við það og sagði upp. Hann birti jafnframt fréttina á vefritinu Nei og upptakan af samtali hans við ritstjórann var spiluð í Kastljósi.

Ritstjórar DV höfðu áður reynt að klóra yfir málið og gera blaðamanninn tortryggilegan.

Í yfirlýsingu sem Reynir sendi frá sér fyrir stundu segir hann að upptakan sem birt var í Kastljósi hafi verið gerð án sinnar vitundar.

„Tveggja manna trúnaðarsamtal er varhugaverð heimild. Í slíku samtali tala menn gjarnan opinskátt og segja jafnvel meira en þeir meina eða vilja sagt hafa. Í þessu einkasamtali við starfsmanninn viðhafði ég óvarleg ummæli um nafngreinda einstaklinga í hita augnabliksins. Ég harma framsetningu þeirra og bið viðkomandi afsökunar. Ég fékk ekki við neitt ráðið. Þessi ummæli eru því ekki aðeins meiðandi fyrir viðkomandi heldur einnig fyrir mig persónulega. Hver og einn á rétt á leiðréttingu orða sinna. Kastljós virti slík sjónarmið að vettugi. Hér var því um að ræða alvarlegt brot gegn persónufriðhelgi minni. Dagblaðið DV hefur um margra ára skeið átt sér ýmsa óvildarmenn, sem margir hverjir hafa opinberlega talað gegn blaðinu og viljað það burt af fjölmiðlamarkaði. Blaðið hefur fram að þessu staðið allt slíkt af sér og hvergi dregið undan í umfjöllun sinni ef mál er talið upplýsandi,“ segir í yfirlýsingu Reynis Traustasonar.

Reynir segir vandasamt að bregðast við í slíkum aðstæðum. Hann harmar að fyrstu viðbrögð hans hafi verið ónákvæm, enda hafi hann ekki munað samtal sitt við starfsmanninn frá orði til orðs.

„Ég bið samstarfsmenn mína og alla hlutaðeigandi afsökunar en tel að sú yfirsjón sé ekki af þeirri stærðargráðu að réttlæti uppsögn af minni hálfu. Raunar hefur stjórn og framkvæmdastjórn Birtíngs lýst því yfir við mig að ég njóti fulls trausts til áframhaldandi starfa sem ritstjóri DV,“ segir Reynir í yfirlýsingunni.

Starfsmenn DV funduðu um málið í dag, án ritstjóranna tveggja, Reynis Traustasonar og Jóns Trausta Reynissonar. Töluverður kurr er í blaðamönnum og sýnist sitt hverjum um starfsumhverfið. Ákveðið var að láta daginn líða og sjá hver þróunin yrði.

„Það hugsar hver sitt en þetta er alls ekki skemmtilegt mál. Það hefur mikið gerst á skömmum tíma og best að taka engar ákvarðanir í skyndi. Það koma hvorki traustsyfirlýsingar né vantraustsyfirlýsingar frá blaðamönnum,“ sagði Kolbeinn Þorsteinsson, trúnaðarmaður blaðamanna á DV.

Ritstjórar funduðu með blaðamönnum í dag og fóru yfir stöðuna. Þar kom fram að Reynir hyggst sitja áfram sem ritstjóri og nýtur fyllsta trausts stjórnar í starfinu.

Undir kvöld sagði Valur Grettisson, blaðamaður upp störfum. Valur segir ástæðu uppsagnarinnar þá að upp sé komið umhverfi sem hann hvorki geti, né vilji, starfa við. Á vefsíðu DV segir að Valur sé í framvarðasveit harðsnúins fréttaliðs DV. Hann hafi á þremur árum undir stjórn átta ritstjóra, starfað á DV í hinum ýmsu myndum, Blaðinu og Mannlífi.

Fleiri munu vera að hugsa sinn ganga hjá DV.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert