Viðbúnaður í Gerðunum

Lögreglumenn undirbúa sig fyrir leit að meintum byssumanni.
Lögreglumenn undirbúa sig fyrir leit að meintum byssumanni. mbl.is/Júlíus

Fjölmennt lið lögreglu er komið í Gerðahverfið í Reykjavík þar sem maður er vopnaður byssu. Ekki er vitað hvort um alvöru skotvopn er að ræða en er það talið líklegt. Lögreglan er með mikinn viðbúnað á staðnum og samkvæmt upplýsingum frá fréttamanni mbl.is sem er á staðnum, er lögregla að klæðast skotheldum vestum og hjálmum.

Verið er að loka aðliggjandi götum. Ekkert hefur fengið staðfest um málið hjá lögreglu.

Sjúkraflutningamenn eru komnir á tveimur sjúkrabifreiðum í nágrenni götunnar þar sem maðurinn heldur sig. 

Lögreglan að undirbúa aðgerðir
Lögreglan að undirbúa aðgerðir mbl.is/Júlíus
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert