Haldið sofandi eftir reiðhjólaslys

Landspítalinn í Fossvogi.
Landspítalinn í Fossvogi.

Kona slasaðist alvarlega þegar hún féll af reiðhjóli á Skálholtsstíg í Reykjavík aðfararnótt fimmtudags. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hlaut konan höfuðáverka. Henni hefur verið haldið sofandi á gjörgæsludeild.

Konan, sem er á fimmtugsaldri, var ekki með hjálm. Tildrög slyssins eru óljós að sögn lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert