Skiptar skoðanir um ESB komu á óvart

Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra segir að það hafi komið sumum mjög …
Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra segir að það hafi komið sumum mjög á óvart að skiptar skoðanir væru um aðildarumsókn að ESB. mbl.is/Ernir Eyjólfsson

Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tók í gær á móti hópi fyrrverandi Evrópuþingmanna frá samtökunum European Parliament Former Members Association. Segir í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu að það hafi komið gestunum mjög á óvart að skiptar skoðanir væru bæði innan ríkisstjórnar og Alþingis um aðildarumsóknina.

Segir í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu að þeir hafi spurt mjög út í það hvernig hægt væri að vinna að aðildarsamningi við slíkar kringumstæður.

Pat Cox frá Írlandi fór fyrir hópnum en meðal gesta voru fyrrum þingmenn frá mörgum ESB-ríkjum, alls 25 manns.

„Á fundinum fóru fram mjög hreinskiptnar og góðar umræður. Jón Bjarnason fór yfir þá málaflokka sem heyra undir hans ráðuneyti og ræddi m.a. afstöðu sjávarútvegs og landbúnaðar til þeirra viðræðna sem nú eiga sér stað um hugsanlega ESB aðild Íslands. Þá greindi ráðherra frá afstöðu sinni og síns flokks til málsins.

Jón Bjarnason ítrekaði að það væri Alþingi sem hefði samþykkt að senda inn umsókn um aðild að ESB og jafnframt sett mjög skýrar línur um þær umræður og meginhagsmuni Íslands. Ekki mætti víkja frá þeirri stefnu nema með samþykki Alþingis.

 Þær upplýsingar að mjög skiptar skoðanir væru bæði innan ríkisstjórnar og Alþingis um aðildarumsóknina komu sumum gestanna mjög á óvart. Spurðu þeir mjög út í það hvernig hægt væri að vinna að aðildarsamningi við slíkar kringumstæður," segir í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert