Frjálslyndi flokkurinn styður baráttu sjómannasamtakanna

Þingflokkur Frjálslynda flokksins hefur sent frá sér ályktun þar sem lýst er fullum stuðningi við aðgerðir sjómannasamtakanna við að viðhalda kjarasamningum og samningsrétti samtaka sjómanna.

Segist þingflokkurinn átelja harðlega framkomu forsvarsmanna Brims í þessu máli og hvetja sjómenn til órofa samstöðu um kjaraleg réttindi sín.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert