Vaka styrkir verkfallssjóð KÍ

Vinnudeilusjóði KÍ hefur borist framlag frá verkalýðsfélaginu Vöku á Siglufirði. Framlaginu fylgir svohljóðandi bréf sem Signý Jóhannesdóttir formaður félagsins undirritar:

„Stjórn Verkalýðsfélagsins Vöku á Siglufirði ákvað á fundi sínum 12.10. 2004 að leggja kjarabaráttu kennara lið með því að veita þeim styrk í verkfallsjóð, úr verkfallssjóði Verkalýðsfélagsins Vöku, að upphæð kr. 250.000. Stjórn Vöku telur að kennurum veiti ekki af „mórölskum“ stuðningi í erfiðum kjaraviðræðum og lítur á framlag sitt sem slíkt.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert