Össur: Telur hægt að sameina Samfylkingu og VG

Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, segir alls ekki útilokað að Samfylkingin og Vinstrihreyfingin-grænt framboð geti sameinast. Össur sagði við Útvarpið, að fullkomið traust ríki á milli forustu flokkanna og aðeins sé ágreiningur um eitt mál, afstöðuna til Evrópusambandsins. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, varaformaður Samfylkingarinnar, sagði í fréttum Útvarpsins að margir Vinstri-grænir eigi samleið með Samfylkunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert