Samkomulag um aðgerðir ríkisvaldsins í málefnum aldraðra

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, kynnti samkomulag stjórnvalda og eldri borgara …
Geir H. Haarde, forsætisráðherra, kynnti samkomulag stjórnvalda og eldri borgara í dag.

Forsætisráðherra, félagsmálaráðherra, fjármálaráðherra og landbúnaðarráðherra, f.h. heilbrigðis- og tryggingarmálaráðherra, og fulltrúar Landssambands eldri borgara, skrifuðu í dag undir samkomulag um aðgerðir ríkisvaldsins í málefnum aldraðra, sem koma til framkvæmda á næstu fjórum árum. Byggt er á tillögum nefndar, sem forsætisráðherra skipaði í janúar með fulltrúum ráðuneyta og Landssambands eldri borgara til að fjalla um aðbúnað og afkomu ellilífeyrisþega en nefndin skilaði tillögum í dag.

Samkomulagið var kynnt á blaðamannafundi í dag. Þar lýstu ráðherrar því yfir að samkomulagið væri mikilvæg sáttagjörð og fulltrúar eldri borgara sögðu að það væri skref í rétta átt.

Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir, að það sé sameiginleg afstaða ríkisstjórnarinnar og Landssambands eldri borgara, að tillögurnar séu til vitnis um gagnlegt samstarf og samráð aðila og endurspegli samkomulag um aðgerðir ríkisvaldsins í málefnum aldraðra sem komi til framkvæmda næstu fjögur árin.

Meginatriði tillagnanna eru eftirfarandi:

  • Hækkun lífeyrisgreiðslna almannatrygginga
  • Einföldun bótakerfisins með fækkun og sameiningu bótaflokka
  • Lækkun skerðingar bóta vegna tekna maka
  • Lækkun skerðingar bóta vegna annarra tekna bótaþega
  • Tekið verði upp frítekjumark vegna atvinnutekna ellilífeyrisþega
  • Hækkun vasapeninga
  • Starfslok verði sveigjanleg þannig að lífeyrisgreiðslur hækki við frestun á töku lífeyris
  • Heimaþjónusta verði stóraukin og áhersla færð frá stofnanaþjónustu
  • Fjármagn sem nú gengur til reksturs stofnana úr Framkvæmdasjóði aldraðra gangi til uppbyggingar öldrunarstofnana
  • Verulega aukið fjármagn til framkvæmda og reksturs til átaks vegna biðlista eftir hjúkrunarrými
  • Aukin áhersla verði lögð á fullnægjandi framboð þjónustu- og öryggisíbúða.

Ríkisstjórnin hefur þegar fjallað um framangreindar tillögur og samþykkt að beita sér fyrir framkvæmd þeirra.

Jafnframt árétta aðilar vilja til áframhaldandi samráðs um þau viðfangsefni sem tillögurnar taka til og annað það sem upp kann að verða tekið í samráðsnefnd aðila. Sérstaklega verður árangurinn metinn á miðju umræddu tímabili í ljósi þróunar verðlags, launa og efnahagsmála almennt.

Nefndarálitið í heild

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert