Ráðherra ákveður að fjölga hjúkrunarrýmum um 174

Siv Friðleifsdóttir.
Siv Friðleifsdóttir. Eggert Jóhannesson

Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, kynnti í dag áætlun sína um uppbyggingu hjúkrunarrýma á árunum 2006 til 2010 en þeim mun fjölga um 174. Ákvörðunin byggist á niðurstöðu nefndar stjórnvalda og fulltrúa Landssambands eldri borgara. Tuttugu hjúkrunarrýmanna verða á Sjúkrahúsi Suðurlands, fjörutíu og fjögur rými verða í Kópavogi, tuttugu verða í Mosfellsbæ, þrjátíu í Reykjanesbæ og í Hafnarfirði, tíu á Ísafirði, og tuttugu í Garðabæ.

Ákvörðun stjórnvalda um aukið fé til uppbyggingar nýrra hjúkrunarrýma gerir kleift að byggja 174 ný hjúkrunarrými á næstu fjórum árum en þau koma til viðbótar þeim sem þegar hefur verið ákveðið að reisa. Er þar átt við hjúkrunarheimili í Sogamýri og á svokallaðri Lýsis-lóð.

1,3 milljarðar króna renna til framkvæmdanna af fjárlögum á árunum 2008- 2009 og auk þess er fyrirhugað að auka framlög til rekstrar vegna fjölgunar hjúkrunar- og dagvistarrýma. Aukningin nemur 100 milljónum króna árið 2008, 580 milljónum árið 2009 og 1.060 milljónum árið 2010.

Þá hefur ráðherra jafnfram ákveðið að hætt verði að nýta fé úr Framkvæmdasjóði aldraðra til rekstrar og fé sjóðsins notað óskipt til uppbyggingar nýrra rýma. Þannig eykst fé til framkvæmda um 200 m.kr. á ári. Frá þessu segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert