Kajak-ræðari sem leitað var að í gærkvöldi fannst látinn í nótt

Í Hvalfirði.
Í Hvalfirði. mbl.is/RAX

Maður á fimmtugsaldri fannst látinn úti fyrir Hvammsvík í Hvalfirði skömmu fyrir klukkan tvö í nótt, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Reykjavík.

Maðurinn hafði farið róandi á kajak út á fjörðinn skömmu eftir hádegi í gær, og var leit hafin að honum um ellefuleytið í gærkvöldi.

Mjög slæmt veður gerði í Hvalfirði um miðjan dag í gær, með norðan hvassviðri.

Rétt fyrir klukkan 23 í gær var lögreglu tilkynnt að maðurinn hefði ekki skilað sér fyrir klukkan 20, eins og hann hafði ætlað að gera, og voru þá þegar kallaðar út björgunarsveitir, og varðskip sem var í mynni Hvalfjarðar tók þátt í leitinni.

Voru það skipverjar sem fundu manninn látinn við hlið kajaksins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert