Ekið á hreindýr

Ökumaður ók á hreindýr á Fljótsdalsheiði klukkan átta í morgun. Dýrið drapst við áreksturinn en ekki urðu meiðsl á mönnum, ekki er vitað um skemmdir á bifreiðinni en ökumaður hélt för sinni áfram. Hræið er nú í umsjá Náttúrustofu sem sér um talningu hreindýra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert